Póstlisti stjórnar - ert þú í sambandi?

Kæru Snarfarafélagar.

Stjórninni hafa borist nokkrar ábendingar frá félagsmönnum að þeir hafi ekki fengið fréttabréf og tilkynningar stjórnar gegnum tölvupóst.

Alls á póstlista eru um 450 félagar og eiga allir félagar að vera skráðir með sín netföng svo hægt sé að koma skilaboðum og tilkynningum í réttar hendur á réttum tíma.

Sumir félagar hafa skipt um netfang eða skipt um vinnu og engin leið er fyrir stjórn að vita um slíkar breytingar.

Hafir þú ekki fengið tölvupóst frá Snarfara síðustu vikur eða misseri biðjum við þig að skrá netfangið þitt upp á nýtt hér að neðan.

 

 

Fáir þú reglulega tölvupósta, nú síðast um vetrarlokun hafnar, máttu hunsa þessi skilaboð.