Við Naustavog er frábær aðstaða til sjóíþrótta og félagsskapar. Sú aðstaða sem félagsmenn hafa sjálfir komið sér upp á hinu friðsæla landi austan Suðavogs er ekki á vitorði allra Reykvíkinga. Tala má um “sveit í borginni ” með miklu og fjölbreyttu fuglalífi og einnig þeirri kyrrð sem allir þrá.
-
- Góðar flotbryggjur með rafmagni og vatni – allar bryggjur eru upplýstar.
- Sala eldsneytis og frábær inniaðstaða fyrir félagsmenn.
- Svæðið er vaktað allt árið.
- Landstæði fyrir þá sem ekki vilja vera á floti allan tímann.
- Geymsla fyrir léttabáta
- Grillaðstaða við félagsheimili,stór garður og margt fleira
- Bryggja víð Viðey, Þerneyjarprammi með grillaðstöðu, bryggja í Hvammsvík og ból í Flatey.
Einnig rekur Snarfari bryggju við Viðey (sunnanmegin), fjótandi pramma við Þerney, bryggju í Hvammsvík í Kjós (þar er rafmagn) og svo ból við Flatey í Breiðarfirði og tvö ból í Elliðaey í Breiðafirði.Þessi aðstaða er félagsmönnum aðgengileg án kostnaðar.